Hundahreinsun 13.-15. nóvember

Árleg hundahreinsun verður á dýralæknastofu Helgu á Ísafirði kl. 16-18 dagana 13.-15. nóvember. Engrar tímapöntunar er þörf, allir skráðir hundaeigendur geta mætt með hunda sína og fengið þá hreinsaða.

Ef hundar og eigendur þeirra kjósa að fá meira næði eða láta skoða dýrið er hægt að bóka tíma hjá dýralækni með því að hringja í sima 896 5205.

Hundaeigendur sem hafa þegar látið hreinsa hunda sína geta sent staðfestingarskjal á hundahald@isafjordur.is.

Hundahreinsun er innifalin í leyfisgjaldi til Ísafjarðarbæjar og er skorað á þau sem eiga eftir að ganga frá skráningu að gera það hið fyrsta. Hunda má skrá í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar.

Samþykkt um hundahald í Ísafjarðarbæ