Hreinsað á Mávagarði

Nokkrir hressir kontóristar af bæjarskrifstofunni enduðu vinnudaginn í gær á stuttri en snarpri ruslatiltekt á Mávagarði á Ísafirði. Skorað hefur verið á fyrirtæki og stofnanir að taka smá skurk á opnum svæðum og vildi bæjarskrifstofan ekki láta sitt eftir liggja. Oft er nefnilega betra að drífa sig út sjálfur með poka í hönd en að bíða eftir að einhver í appelsínugulum samfestingi birtist og reddi málunum.