Hjörleifur Finnsson ráðinn sem verkefnisstjóri á Flateyri
Hjörleifur Finnsson hefur verið ráðinn verkefnisstjóri á Flateyri og mun hann hefja störf nú undir lok maí. Hann tekur við af Helenu Jónsdóttur sem lýkur störfum 1. júní. Hlutverk verkefnisstjóra er að leiða nýsköpunar- og þróunarverkefni á Flateyri, í samstarfi við verkefnisstjórn á grundvelli samnings milli samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, Ísafjarðarbæjar og Vestfjarðarstofu.
Hjörleifur lauk B.A. prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands 1995 og diplóma í opinberri stjórnsýslu við sama skóla 2015. Hann varði meistararitgerð sína í haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða nú í maí 2021. Auk þessa hefur Hjörleifur lokið að hluta meistaranámi í heimspeki, félagsfræði og stjórnmálafræði, aflað sér landvarðarréttinda, tekið námskeið í þjóðgarðastjórnun o.fl.
Hjörleifur hefur rúmlega 20 ára reynslu af verkefnastjórnun, stjórnun og rekstri, stefnumótun og ráðgjöf auk þess að sinna ýmsum kennslu- og fyrirlestrarstörfum undanfarin ár. Hann er og var einn stofnenda og eigenda Íslenskra fjallaleiðsögumanna ehf., hefur m.a. starfað sem ráðgjafi í ferða- og umhverfismálum hjá Royal Commission of Al Ula í Saudi Arabíu 2018 til 2019 og sem verkefnastjóri umhverfismála hjá Ferðamálastofu 2016 til 2018.
Við bjóðum Hjörleif hjartanlega velkominn til starfa og þökkum Helenu jafnframt fyrir góð störf.