Helena Jónsdóttir ráðin sem verkefnisstjóri á Flateyri
Helena Jónsdóttir hefur verið ráðin sem verkefnisstjóri á Flateyri og mun hún hefja störf seinnipart sumars. Hlutverk verkefnastjóra er að leiða nýsköpunar- og þróunarverkefni á Flateyri, í samstarfi við verkefnisstjórn á grundvelli samnings milli samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, Ísafjarðarbæjar og Vestfjarðarstofu.
Helena lauk B.A. prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og Cand.Psych. gráðu í sálfræði frá sama skóla 2010. Hún hlaut löggildingu í verðbréfaviðskiptum frá Viðskiptaráðuneytinu árið 2006.
Helena hefur yfir 20 ára reynslu af stjórnun og rekstri, starfsmannastjórnun, nýsköpun, verkefnastjórnun, sölu- og þjónustustjórnun og ráðgjöf til stofnana og fyrirtækja, auk þess að hafa starfað sem sálfræðingur um nokkurra ára skeið. Þá var Helena framkvæmdastjóri við stofnun Lýðskólans á Flateyri og skólastjóri á fyrsta starfsári hans 2018 til 2019. Hún hefur verið í sjálfstæðum rekstri sálfræðiþjónustu frá ágúst 2019.
Við bjóðum Helenu hjartanlega velkomna til starfa.