Hafið er okkar umhverfi – samtal um hafið og umgengni við það
15.06.2021
Fréttir
Mynd: Halla Ólafsdóttir
Siglingahópurinn Seiglurnar, sem er að sigla hringinn í kringum landið um þessar mundir, býður til samtals um hafið og umgengni við það undir yfirskriftinni „Hafið er okkar umhverfi“. Málþingið fer fram í Bryggjusal Edinborgarhússins á Ísafirði kl. 12:05 miðvikudaginn 16. júní og er það í samstarfi við Hafnir Ísafjarðarbæjar.
Dagskrá:
- Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, forstöðumaður rannsóknaseturs HÍ í Bolungarvík: Álagsþættir af mannavöldum og lífríki í strandsjó
- Sigríður Kristinsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun: Heilbrigt haf
- Catherine Chambers, rannsóknarstjóri hjá Háskólasetri Vestfjarða: Gildi íslenskra smábáta í sjávarútvegi
- Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri nýsköpunar, samfélagsábyrgðar og fjárfestatengsla hjá Brim: Mikilvægi sjálfbærni í sjávarútvegi
- Elena Dís Víðisdóttir, sérfræðingur í orkusviði Orkubús Vestfjarða og fulltrúi Bláma: Orkuskipti í sjávarrútvegi á Vestfjörðum.
Umræðum stýrir Bryndís Skúladóttir, verkfræðingur og Seigla. Gestir eru hvattir til að taka þátt í umræðum. Boðið verður upp á léttar veitingar og er aðgangur ókeypis.