Græn vika í Ísafjarðarbæ

Nú er Græn vika í Ísafjarðarbæ og þá er ekki úr vegi að taka til hendinni eins og hægt er. Ýmsir vinnustaðir og íbúasamtök standa fyrir hreinsun og lætur Grunnskólinn á Ísafirði ekki sitt eftir liggja eins og sést á meðfylgjandi mynd sem tekin var í morgun.

Dagskrá og frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Ísafjarðarbæjar, www.isafjordur.is, með því að smella á hnappinn „Græn vika“ á forsíðu. Á laugardag milli klukkan 12 og 16 ætla Ísafjarðarbær og Kubbur að bjóða einstaklingum upp á gjaldfrjálsa sorpförgun í Funa. Með þessu er verið að bjóða fólki upp á allsherjar tiltekt og hreinsun í geymslum og bílskúrum, en tekið skal sérstaklega fram að farmar af byggingarúrgangi eftir framkvæmdir eru ekki gjaldfrjálsir. Þá gildir gjaldfrelsið ekki fyrir fyrirtæki á þessum degi. Einnig má koma endurgjaldslaust með rusl í ruslabíl sem kemur venjulega áætlunarferð til Suðureyrar, Þingeyrar og Flateyrar, á meðan pláss leyfir.