Gosi á Eyrartúni

Leikhópurinn Lotta sýnir söngleikinn Gosa á Eyrartúni (Sjúkrahústúninu) klukkan 17 á laugardag. Söguna um Gosa þekkja flestir, en leikhópurinn Lotta á það til að krydda uppfærslur sínar með persónum og atvikum úr öðrum ævintýrum og verður engin undantekning gerð þar á að þessu sinni.

Höfundur verksins er Anna Bergljót Thorarensen en þetta er áttunda verkið sem hún semur fyrir leikhópinn.

Áhugasömum er bent á að hægt er fylgjast með leikhópnum á Facebook síðu hans, https://www.facebook.com/leikhopurinnlotta