Gjaldfrjálst í Funa á laugardag

Græn vika stendur nú yfir í Ísafjarðarbæ og lýkur henni á helginni. Markmiðið með framtakinu er að gera Ísafjarðarbæ að enn fallegri og skemmtilegri bæ þar sem fegurð og snyrtimennska verða í fyrirrúmi, íbúum bæjarins til sóma. Grunnskólar og leikskólar verða virkjaðir til þátttöku ásamt öðrum stofnunum Ísafjarðarbæjar. Einnig er þátttaka almennings og fyrirtækja mikilvæg þar sem allir leggjast á eitt þessa viku við að fegra umhverfið og hafa gaman af fallegum bæ. Hugmyndin er að íbúar sjálfir skipuleggi tiltekt og uppákomur í sínu hverfi og fyrirtæki taki til við sitt nánasta umhverfi.

Ísafjarðarbær og Kubbur ehf. ætla að enda grænu vikuna á því að bjóða einstaklingum upp á gjaldfrjálsa sorpförgun í Funa laugardaginn 28. maí milli klukkan 12 og 16. Með þessu er verið að bjóða fólki upp á allsherjar tiltekt og hreinsun í geymslum og bílskúrum, en tekið skal sérstaklega fram að farmar af byggingarúrgangi eftir stórframkvæmdir eru ekki gjaldfrjálsir. Þá gildir gjaldfrelsið ekki fyrir fyrirtæki á þessum degi.

Við viljum líka minna á að brotajárn, spilliefni, raftæki og garðaúrgang má koma með án endurgjalds allt árið um kring. Munum bara að flokka almennilega.