Gámur fyrir garðaúrgang

Nú fullyrðum við að sumarið sé komið og þá er bara að sjá hvort æðri máttarvöld séu okkur sammála. Í öllu falli er rétt að gera ráð fyrir því að margir séu farnir að taka til í görðum sínum og oft utan opnunartíma móttökustöðvarinnar í Engidal. Því hefur verið komið fyrir gámi fyrir garðaúrgang (og ekkert annað) fyrir utan gryfjuna í Funa svo fólk geti losað sig við trjáafklippur, sinu og annað tilheyrandi hvenær sem er sólarhringsins.