Fyrsta skóflustunga að nýju fjölbýlishúsi

Gísli H. Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, tók í dag fyrstu skóflustungu að nýju 13 íbúða fjölbýlishúsi við Sindragötu á Ísafirði. Jarðvegsframkvæmdir hefjast í kjölfarið og bygging hússins hefur verið boðin út. Húsið verður steinsteypt, einangrað að utan og klætt með timbur-múrklæðningu. Undir húsinu verður kjallari með bílageymslu.

Byggingu hússins skal verða að fullu lokið eigi síðar en 1. október 2019.