Fyrirlestrar um heimsókn Grænlendinga 1925

Klukkan 17 á miðvikudag verða tveir fyrirlestrar í sal Listasafns Ísafjarðar þar sem fjallað verður um efni sýningarinnar „Heimsókn Grænlendinga til Ísafjarðar 1925“. Guðfinna Hreiðarsdóttir mun fjalla um heimsóknina og ber erindi hennar heitið  Minningin um heimsóknina frá Grænlandi 1925 og Jóna Símonía Bjarnadóttir flytur erindi frá Sumarliða R. Ísleifssyni sem ber heitið  Hvað geta myndirnar frá Grænlandsheimsókninni árið 1925 sagt okkur?

Við minnum á að síðasti dagur sýningarinnar er laugardagurinn 1. september. Við hvetjum alla til að koma og kynna sér þessa merku heimsókn en henni eru gerð skil bæði í texta og myndum á sýningunni.

Að sýningunni standa: Safnahúsið Ísafirði - Byggðasafn Vestfjarða - Prófessorsembætti Jóns Sigurðssonar, Háskóla Íslands og Námsleið í hagnýtri menningarmiðlun, Háskóla Íslands.