Fundur um uppbyggingu atvinnulífs á Suðurtanga

Ísafjarðarbær boðar til fundar með áhugafólki um uppbyggingu atvinnulífs á Suðurtanga á Ísafirði. Fundurinn verður haldinn á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði 11. mars klukkan 13.00.

Á fundinum verður rætt um þarfir atvinnulífsins við höfnina og hvort og þá hvaða breytingar þarf að gera á deiliskipulagi Suðurtanga til að mæta þörfum atvinnulífsins.

Allir eru velkomnir á fundinn.