Frítt í sund á Umhyggjudaginn 26. ágúst
24.08.2023
Fréttir
Umhyggja, félag langveikra barna og fjölskyldna þeirra, stendur fyrir Umhyggjudeginum sem haldinn er víðs vegar um land laugardaginn 26. ágúst. Í tilefni dagsins verður frítt í sund í sundlaugum Ísafjarðarbæjar. Börn sem mæta í sund þennan dag fá einnig gefins sundpoka með glaðningi, meðan birgðir endast.
Umhyggjudagurinn er haldinn með það að markmiði að vekja athygli á Umhyggju og starfinu sem félagið sinnir fyrir langveik börn og fjölskyldur þeirra.
Nánari upplýsingar má finna á www.umhyggja.is.