Fræðslufundur um kynjasamþættingu

Fjölskyldusvið Ísafjarðarbæjar boðar til fræðslufundar um kynjasamþættingu í dag, fimmtudaginn 18. febrúar, í salnum á 4. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði og hefst hann kl. 12 á hádegi.

Bergljót Þrastardóttir, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu, mun halda erindi um kynjasamþættingu. Gert er ráð fyrir u.þ.b. klukkustundar fundi og eru allir velkomnir.