Fræðsluerindi fyrir foreldra 5 og 6 ára barna

Sálfræðingurinn Sólveig Norðfjörð býður upp á fræðsluerindi fyrir foreldra 5 og 6 ára barna klukkan 20 mánudaginn 10. september. Erindið, sem verður um 60 mínútur að lengd, verður í salnum á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði.

Á eftir erindinu verður svo boðið upp á spurningar og umræður.

Ókeypis aðgangur.