Fræðsla um sjávarútveg fyrir vinnuskólakrakka
Nemendur vinnuskóla Ísafjarðarbæjar sem voru að klára 8. bekk í grunnskóla fengu kennslu í Sjávarútvegsskólanum í síðustu viku.
Sjávarútvegsskólinn er samvinnuverkefni Háskólans á Akureyri, sveitarfélaga og sjávarútvegsfyrirtækja og er markmið hans að auka áhuga og efla þekkingu nemenda á sjávarútvegi.
Stundatafla skólans samanstendur af fyrirlestrum og heimsóknum í fyrirtæki og fræddust nemendur meðal annars um sögu fiskveiða, nytjategundir, vinnslu og vísindi í íslenskum sjávarútvegi. Þá var meðal annars farið í heimsókn í Hraðfrystihúsið Gunnvöru og Kerecis.
Þetta er í fjórða sinn sem vinnuskólinn í Ísafjarðarbæ tekur þátt í Sjávarútvegsskólanum en á Vestfjörðum er honum stýrt af Kötlu Snorradóttur sem sendi nokkrar myndir úr skólastarfinu.