Flateyri - Tilkynning frá Vatnsveitum Ísafjarðarbæjar

Vegna vinnu Orkubús Vestfjarða við rafmagn á Flateyri, eru UV-tæki Vatnsveitu Ísafjarðarbæjar á Flateyri ekki inni sem stendur og því eru vatnsgæði ótrygg. Vatnsveita Ísafjarðarbæjar beinir þeim tilmælum til íbúa, til að fyllstu varúðar sé gætt, að sjóða neysluvatn til miðnættis í dag, 20. september.

 

Vonast er til að tækin verði kominn inn klukkan 19:00 í dag.

 

Nánari upplýsingar veitir þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar.