Flateyri: Sundlaug og íþróttahúsi lokað tímabundið
27.08.2021
Fréttir
![](/static/news/md/1630069098_flateyri_sundlaug2.jpg)
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður íþróttamiðstöð og sundlaug Flateyrar lokað tímabundið frá og með 27. ágúst. Opnað verður aftur eins fljótt og kostur gefst og verður upplýst um það hér á síðunni og á Facebook-síðu Ísafjarðarbæjar.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Grétar Helgason, forstöðumaður íþróttamannvirkja