Flateyri: Lokað fyrir vatnið

Lokað verður fyrir vatnið á Flateyri í dag, þriðjudag, á meðan hreinsun á vatnsbóli stendur yfir eftir skriðuföll næturinnar. Óvíst er hvenær hægt verður að opna fyrir vatnið á ný en íbúar verða látnir vita. 

Ef lokunin dregst á langinn verður tankbíll með neysluvatni sendur yfir á Flateyri.

SMS hefur verið sent til íbúa í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar. Til að skrá númer þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum á 1819 og velja Mín skráning undir Minn aðgangur. Þar er hægt að setja inn eða uppfæra símanúmer og heimilisfang.