Flateyri: Íbúafundur 7. desember
26.11.2021
Fréttir
Ísafjarðarbær boðar til íbúafundar fyrir Flateyringa til að kynna og ræða stöðu þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til í kjölfar snjóflóðanna í janúar 2020.
Fundurinn verður haldinn þann 7. desember kl. 17:00 og fer fram á Zoom: https://us02web.zoom.us/j/89518524156
Dagskrá:
- Veðurstofa Íslands: Kynning á bráðabirgðahættumati og samsvarandi rýmingaráætlun fyrir Flateyri
- Lögreglan á Vestfjörðum/Björgunarsveit: Viðbrögð við snjóflóðum og hættuaástandi kynnt
- Ofanflóðasjóður: Farið yfir aðgerðir í snjóflóðavörnum á Flateyri
- Vegagerðin: Farið yfir aðgerðir í snjóflóðavörnum og vöktun á Flateyrarvegi
- Opnað fyrir umræðu og spurningar
Fundarstjóri verður Birgir Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Allir íbúar Flateyrar eru hvattir til að mæta.