Flateyri: Ekki lengur þörf á suðu neysluvatns

Geislunarbúnaður til sótthreinsunar í vatnstankinum fyrir Flateyri hefur nú verið settur aftur í gang og því þarf ekki lengur að sjóða neysluvatn.

Íbúum sem hafa ekki verið heima á meðan lokað var fyrir vatnið er ráðlagt að láta renna vel úr krönum áður en vatnið er notað.

Flateyringum er þakkað kærlega fyrir gríðarlega þolinmæði í öllu vatnsveseninu þessa vikuna.