Fasteignagjöld 2016

Álagningu fasteignagjalda er nú lokið. Álagningarseðill fasteignagjalda 2016 verður ekki sendur út á pappírsformi frekar en síðustu ár en greiðsluseðlar verða sendir til íbúa sem fæddir eru 1946 og fyrr. Greiðendur geta flett upp álagningaseðli 2016 í gegnum birtingu á vefsíðunni island.is og fylgja leiðbeiningar á heimasíðu Ísafjarðarbæjar, http://www.isafjordur.is/alagningarsedill/
Rétt er að benda sérstaklega á að ekki er veittur staðgreiðsluafsláttur af fasteignagjöldum.