Færð að þyngjast á Ísafirði

Almennt er færð á Ísafirði farin að þyngjast og gera starfsmenn áhaldahúss allt hvað þeir geta til að halda götum færum. Íbúðargötur verða ekki í forgrunni í dag heldur verður reynt að halda strætisvagnaleiðum og stofnbrautum færum. Mokstur hefst svo aftur klukkan 8 í fyrramálið, en þá verður veðrið gengið niður ef spár ganga eftir.