Ert þú með viðburð fyrir Veturnætur 2022?

Ísafjarðarbær kallar eftir viðburðum í dagskrá Veturnátta sem verða haldnar 16.-23. október 2022.

Hátíðin er samansafn menningarviðburða, skemmtana og uppákoma í menningarstofnunum, söfnum, verslunum og veitingastöðum bæjarins. 

Þau sem vilja skella í viðburð á Veturnóttum eru hvött til að hafa samband með því að senda póst á netfangið upplysingafulltrui@isafjordur.is. Eins er hægt að hafa samband ef vantar aðstoð við eitthvað, svo sem að móta góða hugmynd, finna samstarfsaðila, rými eða búnað til að framkvæmda viðburði og svo framvegis.