Enn og aftur um lausagöngu hunda

Nemendur og kennarar á Tanga, 5 ára leikskóladeildinni á Ísafirði, eiga í miklum vandræðum með hundaskít á lóðinni hjá sér. Þó garðurinn sé ekki afgirtur í kringum Tónlistarskólann þá hefur aldrei verið í lagi að hleypa hundum lausum í honum eða láta þá skíta, og á það sérstaklega við núna þegar hann er orðinn leikskólalóð.

Á það skal minna enn og aftur að lausaganga hunda er bönnuð í Ísafjarðarbæ eins og víðast hvar annars staðar.