Endurgerð Tangagötu - tilboð óskast

Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið „Tangagata, endurbygging“.

Um er að ræða uppúrtekt slitlags og efra burðarlags, endurnýjun á holræsa- og vatnslögnum og hellulögn.

Helstu stærðir eru:

Vatnslagnir:  300 m
Fráveitulagnir:     240 m
Gröftur     500 m³
Hellulögn 1400 m²

Verkinu skal vera að fullu lokið 15. september 2018.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með 8. febrúar 2018 og er hægt að óska eftir þeim í afgreiðslu Ísafjarðarbæjar eða með tölvupósti á brynjarjo@isafjordur.is. Tilboðin verða opnuð hjá Ísafjarðarbæ í Stjórnsýsluhúsinu, 2. hæð,  27. febrúar 2018 klukkan 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.