Endurbætur á sánaklefanum í Sundhöll Ísafjarðar

Grétar Helgason, forstöðumaður, stillir sér upp í klefanum. Hægra megin er nýi ofninn.
Grétar Helgason, forstöðumaður, stillir sér upp í klefanum. Hægra megin er nýi ofninn.

Gagngerar endurbætur hafa verið gerðar á sánaklefanum í Sundhöll Ísafjarðar, sem var kominn vel til ára sinna.

Klæðning klefans var rifin út og sett ný og við það stækkaði klefinn. Er hann því rýmri en áður. Þá hefur lýsing í klefanum verið bætt og nýr ofn tekinn í gagnið.