Deiliskipulag fyrir Sæborg í Aðalvík

Ísafjarðarbær auglýsir tillögu að deiliskipulagi frístundabyggðar í Sæborg í Aðalvík. Tillagan liggur frammi á skrifstofum Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, 2. hæð, frá 17. maí til 28. júní 2018 og á heimasíðu sveitarfélagsins: www.isafjordur.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 30. júní 2018 annaðhvort á Ísafjarðarbær, Hafnarstræti 1, 400 Ísafjörður eða á netfangið: axelov@isafjordur.is.