COVID-19: Tilkynning frá skóla- og tómstundasviði 5. október
05.10.2020
COVID-19
Í ljósi herts samkomubanns er mikilvægt að skerpa enn frekar á sóttvörnum í stofnunum Ísafjarðarbæjar.
Leik- og grunnskólar ásamt dægradvöl
- Stöðugt er minnt á eins metra regluna.
- Reglulega er minnt á persónulegar sóttvarnir og aukin þrif
- Allir fullorðnir sem í skólana koma þurfa á láta vita af sér. Þeir skuli spritta hendur við komu og nota grímur verði ekki hægt að virða fjarlægðartakmarkanir.
- Foreldrar leikskólabarna komi eingöngu í forstofur og virði tíma sem gefinn er við komu og lok dags þar sem við á.
- Mikilvægt er að fara ekki á milli stofnana sé þess kostur á meðan harðari takmarkanir eru í gildi.
Sund og líkamsrækt
- Líkamsrækt er lokuð.
- Aukin þrif á sameiginlegum snertiflötum sundlauga.
- Gestir skulu virða og fara eftir þeim fyrirmælum sem sundlaugar gefa er varða fjöldatakmarkanir og leiðbeiningar varðandi fjarlægðarmörk.
- Börn fædd árið 2005 og síðar eru ekki talin með gestafjölda.