COVID-19: Smit á Hlíf

Upp er komið Covid-19 smit á Hlíf á Ísafirði og því eru íbúar og aðstandendur þeirra beðnir að fara sérstaklega varlega, halda umgangi um húsið utan íbúða í algjöru lágmarki og umfram allt að gæta sóttvarna í hvívetna.
Ef þörf er á nánari upplýsingum er hægt að hafa samband við sviðsstjóra velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar í síma 899 7902 eða á margret@isafjordur.is.