Brjóstaskimun á Ísafirði 21.-24. nóvember
07.11.2023
Fréttir
Brjóstamiðstöð Landspítalans verður með brjóstaskimun í samstarfi við heilsugæsluna á Ísafirði 21.-24. nóvember.
Lögð er rík áhersla á að konur nýti sér þessa þjónustu, sjá leiðbeiningar um bókun hér að neðan.
- Með brjóstaskimun er hægt að greina brjóstakrabbamein á byrjunarstigi og draga þannig verulega úr dánartíðni vegna sjúkdómsins.
- Áhersla er lögð á að konur nýti sér þjónustuna sem er að jafnaði í boði á hverjum stað árlega eða á tveggja ára fresti.
- Bókun á krabbameinsskimun@heilsugaeslan.is eða í síma 513 6700 kl. 8:30–12:00 virka daga.