Breytingar á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 og nýtt deiliskipulag vegna Naustahvilftar í Skutulsfirði

 

 Ísafjörður, 7. apríl 2017

2016100047

Efni: Auglýsing

-Breytingar á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 og nýtt deiliskipulag vegna Naustahvilftar í Skutulsfirði

 

Ísafjarðarbær kynnir skipulagslýsingu vegna breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 og á nýju deiliskipulagi vegna Naustahvilftar, Skutulsfirði.

 

Skipulagstillagan er kynnt á vinnslustigi í samræmi við 4. mrg. 40 gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Lýsingin verður til sýnis á opnunartíma frá kl. 10:00 til 15:00 á bæjarskrifstofum Ísafjarðarbæjar að Hafnarstræti 1, Ísafirði og mun vera aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins: www.isafjordur.is frá 12. apríl til 2. maí 2017.

 

Vakin er athygli á því að um er að ræða kynningu á vinnslustigi og tillögur verða auglýstar síðar og þá verður gefinn sex vikna frestur til athugasemda.

 

Virðingarfyllst,

_______________________________

Axel Rodriguez Överby

- skipulags- og byggingarfulltrúi -

 

 

 

Sjá nánar: A1224-003-U02-Skipulagslýsing-ASK-DSK-Naustahvilft