Breyting á aðalskipulagi vegna stækkunar Mjólkárvirkjunar samþykkt
12.11.2024
Fréttir
Mynd: Verkís
Breyting á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2010: Mjólká, stækkun virkjunar, afhending grænnar orku og ný bryggja
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti þann 5. september 2024 tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2010 vegna stækkunar Mjólkárvirkjunnar, afhendingar grænnar orku og nýrrar bryggju. Tillagan var auglýst frá 24. maí til 11. júlí 2024.
Athugasemdir gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Ísafjarðarbæjar.
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar