Breyting á aðalskipulagi vegna atvinnustarfsemi á Suðurtanga samþykkt

Breyting á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2010. Suðurtangi, atvinnustarfsemi

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti þann 31. október 2024 tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2010 vegna atvinnustarfsemi á Suðurtanga. Tillagan var auglýst frá 20. ágúst til 4. október 2024.

Athugasemdir gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Ísafjarðarbæjar.

Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar