Breyting á aðalskipulagi - Kaldárvirkjun og Þverárvirkjun
Tillögur að breytingum á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 eru nú til kynningar á vinnslustigi. Um er að ræða tvær tillögur:
Kaldárvirkjun Önundarfirði: Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að byggja allt að 600 kW rennslisvirkjun við Kaldá í Önundarfirði.
Þverárvirkjun Önundarfirði: Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að byggja allt að 600 kW rennslisvirkjun við Þverá í Önundarfirði.
Tillögurnar verða til sýnis á bæjarskrifstofum Ísafjarðarbæjar og á heimasíðu Ísafjarðarbæjar www.isafjordur.is. Hægt er að koma með ábendingar vegna fyrirhugaðra aðalskipulagsbreytinga. Ábendingar skulu berast til skipulagsfulltrúa Ísafjarðarbæjar, stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, Ísafirði, skriflega eða í tölvupósti á netfangið olofva@isafjordur.is eigi síðar en 28. janúar 2016.
Að lokinni kynningu á vinnslustigi verða tillögurnar lagðar fyrir bæjarstjórn og ákvarðanir teknar um auglýsingu þeirra. Á auglýsingatíma gefst almenningi kostur á að gera formlegar athugasemdir við tillögurnar í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.
Ísafirði 7. janúar 2016
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, skipulags- og byggingarfulltrúi