Bókaspjall í Bókasafninu
04.04.2018
Fréttir
Laugardaginn 7. apríl verður Bókaspjall í Bókasafninu. Dagskráin samanstendur að vanda af tveimur erindum. Að þessu sinni spjallar Ylfa Mist Helgadóttir um bækur. Í seinni erindinu, Hvað á þetta að þýða? - Mikilvægi og mismunur nytjaþýðinga og bókmenntaþýðinga, mun Olav Veigar Davíðsson, þýðandi leitast við að útskýra mikilvægi þýðinga fyrir íslenskt samfélag í fortíð og nútíð auk þess sem fjallað verður um muninn á nytjaþýðingum og bókmenntaþýðingum.
Dagskráin hefst kl. 14.
Heitt á könnunni. Allir velkomnir.