Bókaspjall á bókasafninu

Laugardaginn 6. febrúar kl 14:00 verður fyrsta bókaspjall ársins. Er það jafnframt það sjöunda í röðinni og verða erindin að vanda tvö.

Fyrra erindið er að þessu sinni í höndum Elísabetar Gunnarsdóttur, arkitekts. Hún mun segja okkur frá nokkrum bókum sem eru í sérstöku uppáhaldi hjá henni.

Gestur seinna erindisins er Eiríkur Örn Nordahl. Mun hann fjalla um og lesa upp úr Heimsku, sem kom út á síðasta ári og er fimmta skáldaga höfundarins. Eiríkur Örn þarf annars vart að kynna en hann er einnig þekktur sem ljóðskáld og hefur fengist við þýðingar.


Verið kærlega velkomin, heitt á könnunni. Vonumst til að sjá sem flesta!