Boðsbréf í heilsufarsmælingu

ERT ÞÚ VIÐ GÓÐA HEILSU?


Hjartaheill og SÍBS bjóða ókeypis heilsufarsmælingu 9. til 12. maí á
heilsugæslum á Vestfjörðum, sjá tímatöflu.

 

Mældur er blóðþrýstingur, blóðsykur, blóðfita, súrefnismettun og styrkur.

 

Þátttakendum býðst að taka þátt í lýðheilsukönnun. Verkefnið er unnið í samstarfi við sveitarfélög á Vestfjörðum, Heilbrigðisstofnanir Vesturlands og Vestfjarða.

 

 

Þá viljum við vekja athygli á fræðsluerindi um "Stóru myndina í heilbrigðismálum"  sem Guðmundur Löve framkvæmdastjóri SÍBS verður með í Fræðslumiðstöð Vestfjarða Ísafirði, fjarfundur á Patreksfirði, fimmtudaginn 11. maí kl. 12-13, jafnframt verður reynt að streyma fundinum á Facebook síðu SÍBS. Erindið er um 20 mínútur en í kjölfarið verður opið fyrir spurningar og umræður.

 

Erindið er sérstaklega áhugvert fyrir fagaðila og fulltrúa sveitarfélaga sem vinna að stefnumótun og framkvæmd verkefna er tengjast heilsueflingu.