Bláfáni blaktir við Suðureyrarhöfn
27.05.2016
Fréttir
Í gærmorgun tóku stoltir Súgfirðingar á móti bláfána Landverndar, en viðurkenningin er veitt fyrir markvissa umhverfisstjórnun, góða þjónustu, vandaða upplýsingagjöf og fræðslu um umhverfið. Meginmarkmið verkefnisins að vernda umhverfi í og við smábátahafnir og baðstrendur og efla umhverfisvitund bæði notenda og samfélagsins í heild.
Bláfáninn er tákn um gæði í margvíslegum skilningi og hver sá sem fær að flagga honum getur verið stoltur af vinnu sinni að umhverfismálum. Það er sæmandi fiskveiðiþjóð og ferðamannalandi að gera kröfur um framúrskarandi umhverfisstjórnun í höfnum landsins og er bláfáninn öflugt tæki til að stuðla að því.