Bakvarðasveit búsetuþjónustu

Vegna Covid-19 smita er mjög erfitt að manna vaktir í búsetuþjónustu við fatlað fólk næstu daga. Því óskar velferðarsvið Ísafjarðarbæjar eftir fólki sem hefur reynslu af starfi með fötluðu fólki í bakvarðarsveit.

Leitað er að einstaklingum sem eru tilbúnir að ganga vaktir strax núna um helgina 18.-20. febrúar og jafnvel fram í næstu viku.

Til að skrá sig í bakvarðarsveit eða til að fá frekar upplýsingar, hafið samband við Þóru Marý Arnórsdóttur, deildarstjóra málefna fatlaðra, í síma 869-5738 eða með tölvupósti á netfangið thoraar@isafjordur.is