Bæjarstjórn: Tryggja þarf flugsamgöngur til Ísafjarðar til framtíðar

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti einróma bókun um að tryggja þurfi flugsamgöngur til Ísafjarðar til framtíðar á 548. fundi sínum þann 6. mars. Málið var tekið á dagskrá í kjölfar tilkynningar Icelandair um að hætta áætlunarflugi til Ísafjarðar eftir sumarið 2026.
Í bókuninni leggur bæjarstjórn áherslu á mikilvægi þess að tryggja áframhaldandi flugsamgöngur milli Ísafjarðar og Reykjavíkur, þar sem flugið sé nauðsyn fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðaþjónustu á svæðinu. Þá fagnar bæjarstjórn skýrum vilja yfirvalda til að finna varanlega lausn og hvetur stjórnvöld til að tryggja að málið fái nauðsynlega fjármögnun í fjármálaáætlun sem kynnt verður á næstunni.
Bókunin í heild sinni:
Í ljósi þeirrar ákvörðunar Icelandair að leggja af áætlunarflug til Ísafjarðar í lok sumars 2026 lýsir bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar ánægju með þann skýra vilja sem komið hefur frá yfirvöldum samgöngumála, þingmönnum og nágrannasveitarfélögum um að finna varanlega og hágæða lausn á flugsamgöngum milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Flugið er nauðsyn fyrir íbúa, fyrirtæki, stofnanir og ferðaþjónustu á norðanverðum Vestfjörðum. Innanlandsflug er hluti af almenningssamgöngum og sem slíkt á ábyrgð ríkisins. Ríkið þarf að vera reiðubúið, ef þarf, að styðja flugið með sértækum hætti þar sem um er að ræða stórt byggðamál. Tíminn er naumur. Bæjarstjórn hvetur stjórnvöld til þess að tryggja að þessa sjáist merki í fjármálaáætlun sem lögð verður fram fljótlega.