Bæjarstjóri með vinnustöð á Þingeyri á fimmtudag

Arna Lára bæjarstjóri, Bryndís, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs, og Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs, verða með vinnustöð í Blábankanum á Þingeyri á morgun, fimmtudag, 23. febrúar, frá kl. 9.30-15.30.

Íbúum er velkomið að kíkja við í kaffi og spjall en einnig er hægt að bóka viðtalstíma með því að senda póst á bryndis@isafjordur.is.