Bæjarstjóri með vinnustöð á Flateyri á föstudaginn

Arna Lára bæjarstjóri og Bryndís, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs, verða með vinnustöð í Skúrinni á Flateyri á föstudaginn, 10. febrúar, frá kl. 09-12.

Íbúum er velkomið að kíkja við í kaffi og spjall en einnig er hægt að bóka viðtalstíma með því að senda póst á arnalara@isafjordur.is.