Bæjarhátíð eldri borgara á Þingeyri 23. nóvember

Uppfært 15. nóvember: Hátíðinni hefur verið frestað vegna samkomutakmarkana.

Bæjarhátíð fyrir alla eldri borgara í Ísafjarðarbæ verður haldin á Þingeyri þann 23. nóvember næstkomandi.

Dagskrá:

Elfar Logi sýnir Gísla á Uppsölum

Kaffiveitingar

Tónlistaratriði

Skoðunarferð í eldsmiðjuna

Rúta fer frá Hlíf á Ísafirði kl. 13:00 og til baka kl. 16:30.

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku, hvort sem farið er með rútu eða á einkabíl, hjá Esther Ósk, í síma 450 8254 eða á netfangið estherosk@isafjordur.is.