Auglýst eftir umsóknum um styrki til menningarmála
23.08.2017
Fréttir
Ísafjarðarbær óskar eftir umsóknum um styrki til menningarmála, síðari úthlutun ársins 2017. Umsóknirnar skulu berast til Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði, eða á netfangið thordissif@isafjordur.is. Umsóknarfrestur er t.o.m. föstudagsins 15. september.
Tekið skal fram að þær umsóknir sem þegar hafa borist eru teknar gildar við síðari úthlutun.
Bent er á reglur Ísafjarðarbæjar um úthlutun styrkja til menningarmála og umsóknareyðublað sem fylla þarf út og skila með umsókn.