Auglýst eftir umsóknum um styrki til menningarmála

Ísafjarðarbær óskar eftir umsóknum um styrki til menningarmála, fyrri úthlutun ársins 2017. Umsóknirnar skulu berast til Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði, eða á netfangið thordissif@isafjordur.is. Umsóknarfrestur er t.o.m. miðvikudagsins 15. mars.

Tekið skal fram að þær umsóknir sem þegar hafa borist eru teknar gildar við síðari úthlutun.

Bent er á reglur Ísafjarðarbæjar um úthlutun styrkja til menningarmála og umsóknareyðublað sem fylla þarf út og skila með umsókn.