Auglýst eftir umsóknum um styrki til menningarmála
23.08.2016
Fréttir
Ísafjarðarbær óskar eftir umsóknum um styrki til menningarmála, síðari úthlutun ársins 2016. Umsóknirnar skulu berast til Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði, eða á netfangið thordissif@isafjordur.is. Umsóknarfrestur er t.o.m. fimmtudagsins 15. september næstkomandi.
Tekið skal fram að þær umsóknir sem þegar hafa borist eru teknar gildar við síðari úthlutun.
Bent er á reglur Ísafjarðarbæjar um úthlutun styrkja til menningarmála.