Auglýst eftir umsóknum um menningarstyrki

Ísafjarðarbær óskar eftir umsóknum um styrki til menningarmála, síðari úthlutun ársins 2018. Umsóknirnar skulu berast til Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði, eða á netfangið thordissif@isafjordur.is. Umsóknarfrestur er t.o.m. laugardagsins 15. september.

Tekið skal fram að þær umsóknir sem þegar hafa borist eru teknar gildar við síðari úthlutun.

Bent er á reglur Ísafjarðarbæjar um úthlutun styrkja til menningarmála og umsóknareyðublað sem fylla þarf út og skila með umsókn.