Auglýst eftir umsóknum um menningarstyrki
13.02.2018
Fréttir
Ísafjarðarbær óskar eftir umsóknum um styrki til menningarmála, fyrri úthlutun ársins 2018. Umsóknirnar skulu berast til Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði, eða á netfangið thordissif@isafjordur.is. Umsóknarfrestur er t.o.m. fimmtudagsins 15. mars.
Tekið skal fram að þær umsóknir sem þegar hafa borist eru teknar gildar við síðari úthlutun.
Bent er á reglur Ísafjarðarbæjar um úthlutun styrkja til menningarmála og umsóknareyðublað sem fylla þarf út og skila með umsókn.