Auglýst eftir tilnefningum um íþróttamann Ísafjarðarbæjar 2024
29.11.2024
Fréttir
Elmar Atli Garðarson, íþróttamaður ársins 2023.
Ísafjarðarbær auglýsir eftir tilnefningum um íþróttamann ársins 2024, samkvæmt reglum um val á íþróttamanni Ísafjarðarbæjar.
Opið er fyrir tilnefningar til og með 10. desember. Allar tillögur skulu rökstuddar og tilnefndir íþróttamenn skulu keppa fyrir hönd íþróttafélags í sveitarfélaginu og hafa náð 18 ára aldri á keppnisárinu.
Tilnefningar eru sendar inn í gegnum tilnefningarform.